
GBK Markþjálfun

BLUEPRINT
TEIKNAÐU LÍFIÐ SEM ÞÚ VILT LIFA
Blueprint markþjálfun fyrir þig sem vilt:
Breyta lífsmynstri þínu og skapa langtímabreytingu í lífi þínu.
Fjárfesta í sjálfri þér og upplifa meiri gleði og sátt í daglegu lífi.
Fara í gegnum ítarlegt persónulegt þroskaferli og verða betri í að taka eftir og treysta innsæinu.
Vera heima eða hvar sem er og laus við tímann sem tekur að fara á milli staða.
Blueprint er ein sinnar tegundar hér á landi og hér færðu tækifæri til að vekja og auka getu þína til að fá aðgang að innri visku og sjálfsþekkingu.
Þú færð aðstoð við að :
Skilgreina velgengni og hamingju á þínum eigin forsendum.
Hlusta og taka ákvarðanir með hjartanu. Nota sársauka og breytingar sem hvata að betra lífi.
Fara inn í myrkrið til að upplifa ljósið, finna fjársjóðinn og vinna að því að verða heil manneskja.
Enginn kemst á ólympíuleikana án þjálfara!
Við þurfum öll stuðning, einhvern sem getur aðstoðað okkur við að taka eftir því sem við sjáum ekki og brjótast í gegnum hindranir sem okkur hefur ekki tekist að komast yfir.

Hvernig virkar markþjálfunarferlið?
Þú vinnur með áherslu á þig og takmarkandi viðhorf þín. Þú vinnur ítarlega með það sem þú hefur sagt sjálfri þér um hver þú ert og hvað þú getur verið, náð og gert í lífinu. Á sama tíma vinnur þú í átt að manneskjunni sem þú þráir að vera og á endanum sérðu þig í nýju kraftmiklu ljósi. Þér verður leiðbeint í gegnum skuggana sem standa á milli þín og þíns ekta ótrúlega sjálfs! Þetta er sjaldgæf og öflug þjálfun sem afhjúpar sýn sálar þinnar um hver þú ert!

Verð
14 vikna þjálfun
14 vikulegir tímar, 60–80 mínútur í senn, í síma eða á Messenger — hvar sem þú ert í heiminum.
Að auki færðu tækifæri til dagbókarskrifa og sjálfsmeðferðar í hverri viku.
Verð: 89.000 kr.
Aðeins 6.400 kr. fyrir hvern tíma.
20 mínútna kynning
Í kynningunni færðu tilfinningu fyrir því hvernig er að fá þjálfun með þessum hætti.
Verð: 5.000 kr.
Upphæðin dregst frá heildarverði þjálfunarinnar.
